Be happy

Be happy

Be happy haus 1

Hvað er Álfheiður að hugsa ?

25. ágúst 2010 · 1 ummæli

Endemis þvæla endalaust frá þessari konu, í dag annar heilsugæslan í Grafarvogi ekki þeim sjúklingu sem þangað leita, hvað þá ef sameina á stöðvar.. t.d ég hringdi í gær til að fá tíma og vitið menn þann 7 sept má ég mæta en vinsamlega láttu vita ef þér veruru batnað… “dauð”..

svo er hún að fara aftur til fortíðar með að setja á að þú getir ekki farið til sérfræðings nema með bevís frá heimilislæknir.”sem þú færð ekki tíma hjá”…

Er þetta það sem er efst á baugi hjá stjórnvöldum í landinu, skera niður þjónustu og eiða peningum í ESB ?

Ein þreytt og leið…

“Starfsmenn heilsugæslu Efra-Breiðholts mótmælir harðlega fyrirhuguðum áformum um lokun stöðvarinnar og sameiningu við heilsugæsluna í Mjódd. Í gær var greint frá mótmælum starfsfólks heilsugæslunnar í Mjódd vegna fyrirhugaðrar sameiningar.”

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

Trúin..

24. ágúst 2010 · Engin ummæli

Er það rétt skilið hjá mér að þjóðkirkjan haldi vermdar hendi yfir perra prestum ? að það sé stefna hjá þeim að kirkjunamenn séu yfir lansdmenn hafnir og það séu sér lög sem ganga yfir þá….

Endemis bull frá a-ö.

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

Okkar peningar ?

23. ágúst 2010 · 1 ummæli

Er þetta það sem fólkið í lífeyrisjóðunum vill að gert sé við peningarna sína ?

http://www.visir.is/vestia-ahugaverdur-fjarfestingarkostur/article/2010893987844

Væri ekki nær að lífeyrisjóðirnir lækkuð lán hjá fólkinu og hættu að bjóða upp eignir þeirra ?

→ 1 ummæliFlokkun: Óflokkað

umhugsun.

21. ágúst 2010 · Engin ummæli

Mín hugsun í dag…
Allt kerfi hér á landi er undarlegt…
t.d. Ungir menn sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fá ekki stuðnig hjá féló eins og ungar konur.. Mismunun gagnavart kynjum er algjör þar..

Ungur maður lenti í bílslysi og var fluttur á slysó með sjúkrabíl, þegar fara átti og fá bætur vegna vinnutaps kom í ljós að lögreglan hafði ritað rangt nafn á skýrsluna, enginn veit hvernig það atvikaðist en það tók 1 ár að fá þá til að breita þessu… maðurinn sem hafði verið settur á skýrslu sem ökkumaður í þessu umrædda slysi er fatlaður drengu sem hefur aldrei tekið bílpróf… Undarleg vinnubrögð hjá lögregluni og mjög erfit að fá þá til að viðurkenna mistök og leiðrétta þau…

Hvenær ætlar ríkisstjórni að byrja með þessa skjaldborg ? þegar ríkið hefur eignast allt og slá þá skjaldborgu um sig …. Það tekur þá 1 daga að hækka skatta en mörg ár að gera eitthvað fyrir fólkið í landinu.. Er stefna hjá þeim að allt vinnandi fólk flyti af landinu og eftir verða gamalmenni og sjúklingar sem gefa ríkinu ekkert í kassan..

þá er sú hugsun kominn…

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað

ungt fólk á bótum..

20. ágúst 2010 · Engin ummæli

Mikið var ég nú fegin þegar frétt kom um að ungmenni gætu fengið að fara í menntun á bótum… Minn drengur sótti um í fyrra en þá fell þetta niður, töldum við að sú umsókn myndi gilda áfram… Svo þegar fréttin koma fórum við og spurðum hvort hann fengi þessa frábæru þjónustu en vitið menn… það eru bara þeir sem eiga fasta inngöngu í fornám sem fá þetta…. Það var aldrei búið að senda neitt út um að þau ættu að sækja um skólagöngu og nú er það of seint, allir framhaldsskóla fullir… Sorglegt en satt..

→ Engin ummæliFlokkun: Óflokkað · Ábendingar

Fyrsta færslan

20. ágúst 2010 · 2 ummæli

Velkominn í bloggið þitt á Blogg.is. Þetta er fyrsta færslan þín sem þú getur breytt (eða eytt). Byrjaðu að blogga!

→ 2 ummæliFlokkun: Óflokkað